Hosted by Putfile.com





Ég er orðin hermikráka og dottin í svona prófadótarí. Maður finnur sér alltaf eitthvað gáfulegt að gera þegar maður á að vera að gera ritgerð..... ekki gott mál fyrir mig að hafa aðgang að netinu þegar ég á að vera að læra. En já mér finnst þetta ansi athyglisvert að ég sé GAY BEAR. Nú verður elli móðgaður og segir mér að ég hafi gengið overboard í hækjuskapnum..... But IM HERE, IM QUEER, AND BUY MYSELF A BEER.... eða eitthvað í þá áttina... Þetta lærði ég úr queer as folk þáttunum sem ég horfði á oft og mörgum sinnum í gamla daga með líusnum. En já þetta ætti kanski að taka til athugunar, ég hef nú kannast við að hafa slegið því fram á bitrum stundum að ég ætli bara að snúa mér að kvenmönnum því karlamálin er bara ekki að gera sig hjá mér. Hætti þó snarlega við þegar ég gerði mér grein fyrir hversu mikil dramatík fylgir stelpum og vesen. Það er víst meira en nóg að vera stelpa, og umgangast nánast bara stelpur, við stöndum í raun í mörgum hádramatískum samböndum við hvor aðra. En JÉDÚDDA ef ég þyrfti að vera hrifin af þeim líka. Það var samt fyndið þegar ég laug því á djamminu að Berki að ég hefði komist að því úti í danmörku að ég væri í raun lesbísk. Það var reyndar bara til að fá að vera með í umræðum um einhverjar stelpur, en hann tók þessu svona líka bókstaflega og sagði öllum sem vildu heyra að ég hefði sagt honum þetta á trúnó. Saklaus drengurinn he he trúði því ekki að ég færi að spinna upp sögur. Sagan barst svo bakdyramegin í stelpuhópin minnir að gebba hafi sagt mér frá samtali við erlu þar sem hún var alveg í uppnámi yfir þessum fréttum. Síðan hef ég reynt að leiðrétta þetta oft við börk, en hann neitaði að trúa mér. Á endanum sagði hann bara; Ásta þegiðu og leyfðu mér bara að trúa þessu í friði. Já hann Börkur er skondin skrúfa. Jæja, spurning hvort my soul searching ætti að taka enn nýjan sveig á sig. Ekki nóg með það að ég sé óviss um hvert ég er að stefna eða hvað ég vil útúr lífinu, þá er ég kanski bara í algjörum misskilning með kynhneigð mína he he he he. ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com