Hosted by Putfile.com





Kerlingin er lifandi. Heldur betur sko, ráðsett einstæð heimilismóðir með einbýlishús, þrjú börn og jeppling til umráða þessa helgi. Foreldrarnir skruppu til Færeyja í helgarferð og ég sinni umhugsunarstörfum hér á meðan einsog oft áður í sögunni. Tók þetta mjög alvarlega og vakti eftir litlu systur til þrjú í nótt, hálfgeispandi í flíspeysu og úfið hár eftir videogláp. Daman náttla byrjuð í menntaskóla og var í 16ára afmæli hjá vinkonu sinni, klukkan tvö var ég eitthvað óróleg og hringdi í hana..... bara svona athuga með hana.... Fannst ég nett svona stóra systir, en hún var fegin því M+P hringja víst allmikið meira og stjórna heldur en ég. Shit eins gott, það væri nú einhver kaldhæðni ef ég ætlaði að fara að skipa henni heim fyr og þykjast ala upp ; óhollt að drekka eða eitthvað. Þótt ég sé kannski gömul miðað við þær 16ára, þá á ég nógu sterkar minningar um fyrstu árin í menntaskóla og djammið þar til að setja mig ekki á háan hest. Þær eru nú margfalt betri en ég var og mínar sukkvinkonur.... ;) Mamma er örugglega mjög fegin að hún er ekki einsog ég var.

Í fréttum er það helst að samningar hafa náðst milli mín og langömmu minnar, eða réttar að segja mannsins sem telur fram fyrir hana og munum við eftir helgi taka okkur saman og undirrita samninga þess eðlis að ég fái að leigja íbúðina hennar í Eskihlíðinni frá og með næstu viku. Reyndar með því skilyrði að ýmis húsgögn sem engin getur tekist á við að selja eða taka fá að standa í stofunni og munum við því skarta antíksófasetti og glerborðum, ekki margir sem byrja búskap með því. Langamma hafði alla tíð ábreiður yfir þessu því henni fanst það of fínt til að nota svo ég þarf sennilega aðeins að venjast því að flatmaga þar. Þótt eftir eigi að þinglýsa samningum þá er munnlegt samkomulag um að fröken asaba taki sér bólfestu í þessari íbúð og munum við þarmeð verða samleigendur. Eftir einhverjar vikur verður hægt að ná í okkur í sama símanúmeri, þetta finnst okkur ofsalega sniðugt.

Þessi ákvörðun að yfirgefa foreldrahreiðrið og standa á eigin skuldum til hins ýtrasta mun án efa koma niður á félagslífinu í formi skorts á peningum þar sem þeir fara í annað en öl um hverja helgi ( hljómar sem gott plan til að læra eins mikið og stendur til) En að sjálfsögðu verða kaffiboð og bjórsötur í antíkstofunni og litla eldhúsinu við hvert tækifæri. Hlakka svo til að geta klárað frágangsstússið í íbúðinni og flutt inn.... loksinsloksins




Ciao a tutti!! Oggi é il mio compleanno!! sono officialmente vecchia no? ventitre anni sono abbastanza. Allora, dopo una settimana a reykjavík sto piú meno bene, ha piovuto quasi tutto il tempo. Mi dicono che é stato un estate incredibile, solo adesso che fa freddo ca. 12°, vento e pioggia. Ummm che bello. Non ho ancora trovato lavoro, forse perché non ho cercato per niente. Raramente ti chiamano per venire a lavorare peró sembra che ho due lavore se solo trovo la voluntá e forza per andare lá e parlare col patrone. Ma come mi manca tanto studiare, mi sono subito inscritta negli esame d´estate al fino di agosto. Grammatica italiana II, e grammatica III. Mamma mia come faccio, la professoressa italiana credevo troppo in me che dopo un´anno in italia dovrei sapere tanto tanto. Sicuramente pensava che io studiavo piú di bere. Poverina ha sbagliato, peró visto che sono brava faró questi esami tutte e due. Speriamo per lo meno. Stasera faccio una festa, se qualcuno stava pensando di venire in islanda questa fine settimana ci vediamo a casa mia, piu meno alle dieci. Se no, mi dovete un bacio ;)

Ég á afmæli í dag!! ég á afmæli í dag!! Búin ad fylla tuttuguogþrjú ár af jarðarvafri. Verst bara hvað ég er búin að sjá lítið af jörðinni á þessum árum en ef ég er heppin þá á ég nú nokkur eftir til að nýta í ferðalög og reynslusafn af öllum toga.

Vinum vandamönnum kunningjum og fleiri, velkomið að koma heim til mín í kvöld og skemmta sér í tilefni heimkomu okkar sigrúnar, heimsókn ELLA og TOMMA á íslandi yfir helgina, rigningardaga, framtíðarmöguleika í ferðamálum, afmælis míns, gay pride hátíðarinnar eða hvers sem viðkomandi dettur í hug. Mæting uppúr níu og velkomið að velja sitt eigið þema og sinn eigin drykk fyrir kvöldið.

Hlakka til að skemmta mér með góðu fólki








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com