Hosted by Putfile.com





Kerlingin er lifandi. Heldur betur sko, ráðsett einstæð heimilismóðir með einbýlishús, þrjú börn og jeppling til umráða þessa helgi. Foreldrarnir skruppu til Færeyja í helgarferð og ég sinni umhugsunarstörfum hér á meðan einsog oft áður í sögunni. Tók þetta mjög alvarlega og vakti eftir litlu systur til þrjú í nótt, hálfgeispandi í flíspeysu og úfið hár eftir videogláp. Daman náttla byrjuð í menntaskóla og var í 16ára afmæli hjá vinkonu sinni, klukkan tvö var ég eitthvað óróleg og hringdi í hana..... bara svona athuga með hana.... Fannst ég nett svona stóra systir, en hún var fegin því M+P hringja víst allmikið meira og stjórna heldur en ég. Shit eins gott, það væri nú einhver kaldhæðni ef ég ætlaði að fara að skipa henni heim fyr og þykjast ala upp ; óhollt að drekka eða eitthvað. Þótt ég sé kannski gömul miðað við þær 16ára, þá á ég nógu sterkar minningar um fyrstu árin í menntaskóla og djammið þar til að setja mig ekki á háan hest. Þær eru nú margfalt betri en ég var og mínar sukkvinkonur.... ;) Mamma er örugglega mjög fegin að hún er ekki einsog ég var.

Í fréttum er það helst að samningar hafa náðst milli mín og langömmu minnar, eða réttar að segja mannsins sem telur fram fyrir hana og munum við eftir helgi taka okkur saman og undirrita samninga þess eðlis að ég fái að leigja íbúðina hennar í Eskihlíðinni frá og með næstu viku. Reyndar með því skilyrði að ýmis húsgögn sem engin getur tekist á við að selja eða taka fá að standa í stofunni og munum við því skarta antíksófasetti og glerborðum, ekki margir sem byrja búskap með því. Langamma hafði alla tíð ábreiður yfir þessu því henni fanst það of fínt til að nota svo ég þarf sennilega aðeins að venjast því að flatmaga þar. Þótt eftir eigi að þinglýsa samningum þá er munnlegt samkomulag um að fröken asaba taki sér bólfestu í þessari íbúð og munum við þarmeð verða samleigendur. Eftir einhverjar vikur verður hægt að ná í okkur í sama símanúmeri, þetta finnst okkur ofsalega sniðugt.

Þessi ákvörðun að yfirgefa foreldrahreiðrið og standa á eigin skuldum til hins ýtrasta mun án efa koma niður á félagslífinu í formi skorts á peningum þar sem þeir fara í annað en öl um hverja helgi ( hljómar sem gott plan til að læra eins mikið og stendur til) En að sjálfsögðu verða kaffiboð og bjórsötur í antíkstofunni og litla eldhúsinu við hvert tækifæri. Hlakka svo til að geta klárað frágangsstússið í íbúðinni og flutt inn.... loksinsloksins

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com