Hosted by Putfile.com





Jesss!!!! Jesss hoppa um gólfið og vantar einhvern til að samfagna!!! Það tókst...Tvö copy af fimmtán blaðsíðna ritgerð liggja á borðinu. KRAFTUR INNRI UPPLIFUNAR. Það er búið, því er lokið kem ekki við hana meir nema til að henda í hólfið hjá kennaranum. Nú hef ég rétt rúman sólarhring til að komast að því um hvað áfanginn Rómönsk málvísindi fjalla. Læra um fónem og hljóðbrigði og sérhljóðakerfi allra málanna, og einnig mismunandi þróun sérhljóðakerfa í áhersluatkvæði í alþýðulatínu, í vestur og austur romaníu frá 3 til 9 öld eftir krist. Hvaða áhrif þessi þróun hefur síðan haft á nútíma rómönsk mál. Rafael "vinur" okkar, er einmitt frá Salamanca sem þýddi að sigrún var vinkona hans fyrir jól og gerður vildi vera það... he he

Það var svo seinna sem við þurftum að sitja tíma hjá manngreyinu og við gerðum okkur grein fyrir að hann er allt annað en krúttlegur þótt hann sé með mikinn hreim og tala smá bjagað. -Og vid förum ad sja ad tad hefur mjog breyst i timans ras..... en a eftir forum vid ad sja....vantar sko hljómfallið það er fyndið. En fullkomnunarárátta þessa málvísindamanns er ekki að gera það fyrir okkur. Sérstaklega að við skiljum ekki baun þegar hann er að reyna að útskýra.....

Eins og venjulega þá vakna ég til lífsins um miðnætti, bölva sjálfri mér fyrir að hafa ekki farið út í sjoppu fyrir lokun og keypt nammi, velti fyrir mér hvort ég eigi að drekka meira kaffi.... Undarlegur dagur, fór út í tæpan klukkutíma þegar mamma skipaði mér að fara og láta setja sumardekkin undir bílinn. Ég hata verkstæði af öllum lífs og sálar kröftum. Ég hata og vera send þangað og vita ekki neitt hvernig ég á að snúa mér. Geri mér líka alveg grein fyrir því að ég er lúði. Og það sem verst er stelpa. Ég meina, hvað er málið með það!!!! Ekki á ég bíl, og er meira segja sjaldan á bíl. Bara svona stundum fæ ég að grípa í mömmsu bíl.....enginn hefur sýnt manni neitt....og mér hefur líka aldrei dottið í hug að spurja um neitt tengt bílum.... Vanþóknun mína á þessari upplifun að fara á verkstæði og vesenast eitthvað um og brosa og segja ó hingað og eitthvað svona og borga svo VIÐBJÓÐSLEGA MIKIÐ, er svo gríðarleg að það munar litlu að ég myndi forðast það að fá mer bíl. Borgaði FIMMÞÚSUNDKALL takk fyrir, Bara fyrir það að einhver olíuborinn og skítugur benti mér að koma, og svo tvísteig ég í svona tólf mínútur, þá kom hann og sagði eigum við ekki bara að gera þetta upp og labbar á undan mér inn í einhverja miður geðslega kitru og ég hugsaði með mér að ef ég væri svona fimmtán sentimetrum hærri á hælum og með fullt af ljósu hári, stórum brjóstum og nöglum þá væri þetta einsog atriði úr einhverri mynd. Djöfulslins okurlaunum eru þeir á, kanski ætti ég að endurskoða starfsframann og snúa mér að bifvélavirkjun. Jahh hvaða starfsferill er það þá sem ég er að vísa í..... Ferill hins fátæka óvirka listamanns.... Auðvitað alltaf að snúa sér bara að Bifvélavirkjunum sjálfum, hefur nú heyrt fleygt kommentum um passlega sveitta menn með vinnubelti og svona.... Létt olíuborna.....he he

Annars er álit mitt á þeim karlpening sem nýjustu fregnir fara af alveg í rock bottom. Djöfulsins dónar og druslur geta þeir verið, já fínt ég veit maður má ekki alhæfa en þegar sögurnar eru bara leiðinlegar í kring um mig þá stenst maður ekki að hugsa I RAGAZZI SONO PORCHI Þeir eru allt frá mönnum sem bjóða pening!!! ) -NOTA BENE ekki einu sinni að bjóða góða fúlgu heldur bara að bjóðast til að borga ferðakostnað! Ef þarf að taka mann sem hóru, þá finnst mér eins gott að viðkomandi borgi bara fullt verð. Vinkonur mínar eru engar 5dollara, heldur EÐALhó. ) Til manna sem eru bara fíbl og leiðindapésar, sem sýna bara hreina ókurteisi og nánast ómannlega framkomu, Hvers vegna ekki að koma vel fram við aðra þótt þeir séu kanski ekki the one and only og enn fleiri sem eru haldnir hinu alræmda Helgasindrómi einsog sigrún kallar það. Sindróm þetta er kennt við ungann mann sem hafði mikið fyrir því að grafa upp upplýsingar um viðkomandi stúlku, mikið fyrir því að fá hana til að hitta sig og enn meiri viðreynslu. Þegar svo pakkinn var á borðinu þá er bara svona yppt öxlum. Whatever, en nei ég nenni þessu eiginlega ekki og svo er bara silent treatment dauðans. Verst af öllu er það náttúrulega að okkur skuli ekki vera löngu búið að lærast að standa á sama um alla þessa vitleysinga. Hvers vegna í ósköpunum er maður svona blindur á eigin aðstæður. Af hverju er það ekki einu sinni lygi að maður falli yfirleitt alltaf fyrir þeim sem maður veit innst inni að mun bara fara illa með mann.....og eina sem þeir myndu segja er ; Já en ég veit ég er asni.

Einsog það breyti einhverju að segja það. Já, en þú veist ég er asni, afhverju ætti ég að fara að breyta því?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com