Hosted by Putfile.com





Til hamingju með páskana!!! Súkkulaðislef og kaffi maður. Úff ég er nærri dauða en lífi af sykri. Býð sjálfa mig velkomna aftur í siðmenninguna, þetta var hörku sumarbústaðaferð. Alveg tveir heilir dagar með familíunni. Og var alveg bara yndislegt, ekkert að gera nema læra þannig séð svo ég kom heilmiklu í verk. Milli þess borðaði ég mikið mjög mikið. Mmmm matur er góður. Ég fékkst meira segja til að labba upp á mosfellið!! Og fanst það hressandi bara.....vá hvað ég er jákvæð. Get ekki annað en verið oggu ponsu stolt af sjálfri mér. Jæja, mikið er ég samt fegin að koma í bæinn.....Við erum búin að vera hálf lömuð í allan dag, úr hita. Það er nebla eitthvað með vatnskerfið að lægsta stilling er samt funheit...Pabbi þóttist fullviss um að það færi kólnandi yfir nóttina og ekki ætti að lækka. Mér leið að vísu vel enda nokkuð fáklædd, reyndi að segja þeim að fara bara úr flísbuxunum og ullarfrottepeysunum það væri óþarfi í rafmagnsbústað..... Jæja um kvöldið kom smá sjokk, eftir miðnætti fattaðist að enginn var búinn að gera ratleikinn sem lofað hafði verið. Obbobb en jæja pabbi neyddist til að finna út úr því snarlega, en það fór að versna í því þegar páskaeggin sjálf fundust ekki. Virtust bara hafa gufað upp....... Eftir langa leit fann ég þau í poka út í horni, undir teppum upp við ofn.......jebb einmitt það voru engin páskaegg lengur - heldur páskaklessur. Við fengum létt sjokk sáum fyrir okkur grát og gnístan tanna barnanna þriggja. Sem betur fer höfðu þau húmor fyrir því að í ár væru bara klessur í boði og réðust á þetta með tólum og tækjum. Ég gat ekki annað en hlegið þegar ísleifur eftir mikla leit af málshættinum, dregur hann út úr sér, úr bita sem var hann var að borða. Skælbrosandi " Ég fann hann" Og sýndi mér svo stoltur steingerfingsfarið af málshættinum í klessunni. Málshátturinn minn hljóðaði svo: ENGIN KEÐJA ER STERKARI EN VEIKASTI HLEKKUR HENNAR Hann er nú frekar mikið notaður svona, en ég meina, hann stendur fyrir sínu...... Jæja nú er komið að aðalfjörinu, því sem ég er búin að bíða eftir alla helgina.... nú fæ ég að fara að vinna og afgreiða útlendinga, kanski örfáa vantrúaða íslendinga sem ólíkt hinum, neita að taka þátt í trúarhátíðum. Allir að fá sér pizzu á páskunum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com