Hosted by Putfile.com





Veðrið leikur við hvern sinn fingur. Jahh ef það hefði slíka..... Ég haga mér einsog ég sé í langþráðu fríi þar sem gert sé ráð fyrir lágmark 12 tíma svefni á nóttu, góðum mat og bara eðal hangelsi. Það virðist ekkert geta síast inn fullkomlega að ég sé í raun í drulluerfiðu prófatímabili. Hvaða hvaða þetta reddast allt.

Stóð að sjálfsögðu við framangreind orð um að halda upp á letina með því að fá mér einsog einn bjór í gærkvöldi, áttum ágætis kvöld nokkrar saman. Mig var farið að þyrsta allverulega í einn slíkan. Annar er ég alveg brjáluð út í fólkið sem rekur þann mæta stað PizzaHut þar sem hann lét mig fá alveg gommu af vöktum meðan ég er í prófum, meira segja tvo daga þar sem ég á að vinna allan daginn, en úps ég er bara í prófi þá. Alveg pirruð að hann skildi ekki einu sinni tala við mig. Af einhverjum ástæðum tek ég nefnilega gengi mitt í þessum prófum fram yfir vinnu undarlegt. Bæti ekki úr skák hvað ég er mikilll letipúki og hef ekki lært fyrirfram. Get bara ekki hamið mig til að læra þegar það er heil vika í prófið..... Allur þessi tími.... Mig dreymdi að ég var farin í ferðalagið með bakpokann minn, og var ótrúlega glöð þegar ég vaknaði. Fyndið að heilinn á mér sér mér bara fyrir skemmtilegheitum á nóttunni ef lítið er að gerast. Það bara bara allt að gerast í hausnum á mér í nótt.....

Hlakka svo til að ég er farin að pakka í huganum, og núna er ég búin að ákveða að kaupa massa mikið af filmum áður en ég fer...það er ódýrara....og svo get ég brennt þær á disk he he já og jafnvel sett þær á netið?? Ása á nebla góða myndavél sem hún er búin að lofa sameiginlegum afnotum af. Ætla kaupa miðana á hurricane á morgun. Þá er nú nánast allt í höfn!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com