bobblebeer ja wunderbar
hóstaköst en bara á nóttunni. Bókahlaðarnir virðast stækka með hverri mínútunni og ógna mér og tímanum. Bókin sem ég er að lesa byrjar á setningunni "Who am I" og fylgir því gríðarleg súrrealísk hringavitleysa um þá spurningu. (það er kannski ekki sérkennilegt komandi frá höfundi súrrealíska manifestósins...) Ég gat samt hlegið á blaðsíðu sextíu þar sem stendur "There is no use being alive if one must work. The event from which each of us is entitled to expect the revelation of his own life´s meaning - that event which I may no yet have found, but on whose path I seek myself - is not earned by work." Nadja - André Breton
Í efnislegri fréttum er það helst að við settum hnefann í borðið um mánaðarmótin og komum með frægu setninguna "Skipti aldrei við þetta fyrirtæki aftur!!" Nú njótum við ekki lengur þjónustu símans eftir uppreisn okkar og reiði þar sem engin sá sér fært að svara reiðibréfinu mínu. Verri hliðin er að þá erum við netlausar enn og aftur. Fer fram húskosning bráðum á milli BT og HIVE.
ekki dugir bobbla né hóstahrinur því í kvöld er oktoberfest í 1400fm tjaldi fyrir utan háskólann og verða þar bjórar, bratwurst og liederhosen. Stemmingunni verður haldið á lofti með þýskum slögurum og jafnvel jóðli. Jódelíheídilojúdelí
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home