Hosted by Putfile.com





föndur

Brandari dagsins.

Ég held að einhverstaðar í skriffinskuskipulagi háskólans standi að í 5 eininga BA rigerð sé gert ráð fyrir 5 vikna vinnu.

Kjaftæði.

Ok tímasetningar. Þær eru alltaf á alla kanta rangar. Ætli það séu til einhverjar lausnir við því að tímasetningar fólks séu alltaf í misræmi? Það gæti verið lausnin á flestum mínum vandamálum að koma bara tímasetningum á hreint. Kannski þroskaskref ársins í lúppunni sem felst í tímanum. Engin línuleg þróun til elli og gáfumennsku hér á bænum.

-Það breytti alvarleika ritsmíðanna allmikið þegar ég settist með útprentaðann blaðabunkann, skæri heftara og yfirstrikunartúss og klippti allt niður í búta og föndraði hana saman öðruvísi. Soldið svona einsog í listasmiðjunni í leikskólanum.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

en leikskólastemmningin er einmitt svo skemmtileg.. þetta er alveg win-win situation: Föndur og yfirsýn yfir ritgerðina hehe

2:42 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com