Hosted by Putfile.com





jeremías

Ég verð að hætta að skrifa hananú. Tók skyndilega eftir ofnotkun orðsins og sló mér á lær. Hefur kannski tekið við af jedúdda, nema ég segi aldrei hananú í talmáli. Kannski er hananú skrifmálslegra en jedúdda. Spá í að hætta að segja bæði og taka upp á því að segja jeremías.

Annars var sá sami og ég sá seinast skrifa jeremías (óþekktur bloggari í heiminum sem ég man ekki einu sinni lengur hvernig ég lenti inn á síðu hjá) en sá hinn sami skemmti mér sérlega með heilli færslu m eð eintómum ypsilonum einsog mér datt í hug um daginn. Vyð eygum að taka upp eyngöngu ypsylon ý ýslensku. Þetta er svo ofsalega fallegt. Ef ég held áfram að skryfa tek ég kannsky uppá þvý að breyta stafsetnyngunny mynny þannyg.

Sunnanlægð og suddi. Grámóskulegt en skyggni ágætt. Mikið ófsalega er til mikið af skemmtilegu námi í heiminum. Allt kostar þetta samt péninga sem ég veit ekki hvaðan eiga að koma þegar LÍN hefur sleppt af manni hendinni einsog bókhlaðan. Bölvaðir fasistar skylda mann í formlegt háskólanám til að lána manni fyrir lífinu. Ætla í það að taka meiri ljósmyndir. Ég ætla hinsvegar ekki að skrifa um þær, þó ég skrifi á þær eða taki myndir af því sem ég hef skrifað.

Ok kannski væri málið að næla í fegurðarblund svo ég heilli mann og annan uppúr skónum í viðtalinu með augnhárasveiflum og breiðu brosi og fá leyfi til að púla og svitna á ómannlega löngum vöktum á lúsarlaunum. Biturleiki hugvísindardeildarnámsmanns tvíefldist við hleraða ræðu tölvunarfræðinema sem kvörtuðu undan tæpum þrjúhundruðþús launum þar sem þeir væru ekki komnir með gráðuna. En ég get glatt mig við það hvað mitt nám er gefandi.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Listamenn verða hvort eð er aldrei frægir fyrr en eftir sinn dag. En börnin þín og barnabörn geta orðið ríkisbubbar og sólundað fjölskylduarfinum á Frönsku rivíerunni eða stofnað söfn fyrir öll ómetanlegu listaverkin þín Jerimías minn :)

12:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com