where r u from?
Eftir þessa nettu PR stemmingu og fyrirbyggingu móðganna, þá vil ég minna á að hittingar með fullt af ókunnu misskrýtnu fólki eru ávallt skemmtileg á penthásinu. Alþjóðleg blanda oft á tíðum, en óvænt í kvöld með kokteilaívafi eftir tófúið með hnetusósu og massachillí (björk og sigrún þið veeeeerðið að senda okkur alvöru chillíið þetta gengur ekki) í hrærigraut af kokteilum, bjór, hvítvíni og slummu af stelum með ábót af nokkrum hressum strákum þá varð þetta hið fínasta kvöld.
Ég er kannski svört á tungunni í dag eftir að ég kom mér undan að vinna í fyrramálið. Ætli þetta hafi áhrif á góðmennskustig mín í alheiminum? En fyrst það er aðalega maður sjálfur sem stjórnar því hvað verður eða hvernig fer þá hlýtur þetta að falla undir multitasking abilities. Kannski ég bæti þessu við á ferilskránna.
3 Comments:
Takk fyrir að bjóða mér
jámm. skemmtilegt kvöld. Þetta finnst mér hinsvegar nánast skuggalegt; kíktu á tímasetningar á þinni færzlu og minni!
aftur, takk fyrir gærkvöldið, það var frábært.
Sigrún sykurpúði ekki vera pirruð, það var alveg óvænt að kvöldið fór svona, ég vissi ekki fyrr en ellefu að ég þyrfti ekki að vinna um snemma morguninn, líka óvænt að stelpurnar skyldu vera með útlendinga sem langaði að djamma í slagtogi, engin formleg boð í stöðunni svo þeir komu sem leituðu að einhverju að gera.
Skrifa ummæli
<< Home