Hosted by Putfile.com





kjósninga

Ég náði korteri fyrir lokun að kjósa. Ekki að ég hafi endilega ætla að sleppa því, bara skemmti mér við að láta gerði sambó halda að mér væri alveg sama og myndi ekki mæta eða skila auðu. Hún roðnaði á eyrunum og hélt yfir mér þrumuræður, enda var hún svo spennt fyrir deginum að hún skoppaði og ýskraði og tilhlökkunin fyrir að fá að kjósa mikil. Ég var ekki svona spennt en þó hef ég víst skoðun á þessu einsog öllu öðru. Finnst stundum þetta allt vera hvort eð er klisja og klúður í íslenskum stjórnmálum.

Hins vegar vorum við ekki kærðar fyrir áróður á kjörstað fyrir að mæta báðar í kápunum þangað en almennt vakti það gríðarmikla athygli í bænum.

Stundum er ég bara illa fókusuð. Ég gæti kannski hætt að ganga með linsurnar bara. Mér er hvort eð er líka betur við heiminn í blurruðum útlínum og ljósin sem teygjast á alla kannta í stað þess að vera skýr en auk þess finnst mér ljósmyndir stundum bara skemmtilegri því hreyfðari sem þær eru.

Uppgötvanir helgarinnar. Langt svefnleysi og djamm fer einstaklega illa saman. Ég er pólitískari en ég hef látið í veðri vaka. Forðast ætti grindverk einsog heitan eldinn. Fríið hverfur hraðar en vinnudagarnir.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ó mæ god. Hvaða ógeðslega töff manneskjur eru þetta á myndinni??

3:59 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Áfram VG!! ;)

3:59 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home








Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com


Hosted by Putfile.com