bankadúddar
nú þurfti ég að rökræða ástæður þess að hafa helv yfirdrátt sem er mjög óhagstæður og dúddinn skyldi ekkert í mér að hafa hann ofan á aðrar skuldir. Hann sýndi undarlegum rökum mínum lítinn skilning og mig grunar að hann hafi klæjað í fingurnar að senda mig á fjármálanámskeið. Vextir og kostnaður eru bara fylgikvillar hversdagslífsins í minum augum.
Rósa hefur örugglega hneykslast einsog ég á nafnabreytingunum, alltíeinu var ég í viðskiptum við glitni en ekki isb. En mér er svo sem sama hvaða nafn reikningarnir mínir bera. Mér finnst rauður líka fallegri en blár ef út í það er farið.
það er kannski af sem áður var að bankafulltrúar leggji sig í líma við að vera kammó eldri frænkur viðskiptavina sinna og passa uppá þá einsog lömbin sín. Nú var þetta bara einhver nýútskrifaður viðskiptafræðingur með bindi, í lakkskóm og gel í hárinu og metnað í að hemja kjánaskapinn.
4 Comments:
Ég fæ nú ennþá eldri frænku kammó attitjúd í Lansbankanum mínum. Og þær sendu mér meira að segja geisladisk í tilefni afmælisins þeirra, sérlega vinalegt. :)
Ég lenti í þessu sama þegar hún Bogga mín hætti hjá íslandsbanka. Þurfti allt í einu að rökstyðja fyrir einhverri ókunnugri konu af hverju ég þyrfti þetta og allt í einu voru einhver vandamál sem voru aldrei vandamál áður. En þetta er allt í lagi. Ég er óðum að byggja upp frænkusamband við þessa.
Hvenær komiði westur??
-jaj
Jæja stelpur ég gleðst að heyra að frænkuelementið sé enn til. Ég ætla gera leit að einni slíkri frænku til að passa mig í stað geltúbutöffarans sem skildi mig og mínar fjárhagslanganir engan veginn.
Júdith, ég er að springa úr tímaleysi og vinnutímavandræðum ofan á allt annað svo ég er ekki að sjá að ég komist vestur. Þykir það hrillilega leitt en einsog staðan er í dag þá eru of fáir dagar og of fáir péningar í íslandslífinu.
Skrifa ummæli
<< Home